Bókin Markaðssetning á netinu

Bókin hefur það að leiðarljósi að vera hagnýt verkfærakista fyrir íslenskt markaðsfólk sem er eða vill byrja að nota netið í sínu markaðsstarfi.  Í henni er fjallað um allar helstu samskiptaleiðir netsins en hún er jafnframt full af nýjum innlendum og erlendum rannsóknum um notkun fólks á netinu og hvernig hámarks árangri er náð. Ennfremur eru í bókinni fjölmagar íslenskar dæmisögur og tölur fyrir íslenskt markaðsfólk að nota sem viðmið í sínum daglegu störfum.

Í dag er allt markaðsfólk netmarkaðsfólk.

Bókin kynnir nýjar áður óbirtar rannsóknir sem varpa ljósi á það hversu langt ísland er komið í notkun á netinu en tækifærin fyrir íslensk fyrirtæki eru því geysilega mikil!

Eftir lesturinn á fólk að vera mun betur upplýstar um:

  • …þær breytingar sem hafa átt sér stað á neytendum
  • …það breytta umhverfi sem fyrirtæki og vörumerki starfa nú við
  • …þau mýmörgu tækifæri sem eru á netinu í dag sem hægt er að nýta með oft litlum tilkostnaði
  • …hvernig hægt er að ná hámarks árangri með vefborðum
  • …hvernig hægt er að ná hámarks árangri með leitarvélunum
  • …hvernig hægt er að ná hámarks árangri með samfélagsmiðlunum (Facebook o.s.frv.)
  • …hvernig hægt er að ná hámarks árangri með tölvupóstum
  • …hvernig netið kemur inn í hefðbundnar birtingaáætlanir
  • …hvernig vefgreiningartól virka og hvernig best er að nota þau
  • …og fleira og fleira!

Hvar kaupi ég bókina?

Bókin er seld hjá Bóksölu stúdenta, Eymundsson og Pennanum.

Bakhjarlar bókarinnar eru: ICELANDAIR, ÚTFLUTNINGSRÁÐ, HVÍTA HÚSIÐ og NORDIC eMARKETING.

Efnisyfirlit

efnis1efnis2