Höfundar

Guðmundur Arnar / Kristján Már

Guðmundur Arnar Guðmundsson er hagfræðingur frá Acadia University í Kanada og með MBA gráðu frá Háskóla Íslands.  Hann hefur ritað fjölda greina um viðskipti og markaðsmál í tímarit og blöð á Íslandi og er formaður Ímarks, félags markaðsfólks á Íslandi.  Hann hóf störf við markaðsmál hjá 365 en flutti til Englands 2006 og starfaði þar sem markaðsstjóri breska sölusvæðis Icelandair.

Guðmundur starfaði í markaðsdeild Icelandair á Íslandi frá árinu 2008 og fór fyrir markaðsstarfi íslenska sölusvæðisins, sá um markaðsrannsóknir fyrirtækisins ásamt því að koma að stefnumótandi uppbyggingu vörumerkisins Icelandair.  Árið 2012 hóf Guðmundur störf sem framkvæmdastjóri markaðssviðs WOW air.

Tölvupóstur: gummi3849@gmail.com, Greinasafn MBL.IS: , GSM: 696-9059.

Kristján Már Hauksson hefur komið víða við. Hann lærði rafeindarvirkjun í Iðnskólanum í Reykjavík, kerfisfræði við Tölvu og verkfræðiskólann og er með internet markaðsfræðigráðu frá University of British Columbia. Hann stofnaði Nordic eMarketing og starfar nú þar sem sviðstjóri net markaðssetningar.  Þar sérhæfir hann sig í  leitarvélamarkaðssetningu og net-almannatengslum (ePR – Online PR).

Kristján stofnaði Íslenska SEO/SEM samfélagið og skrifar reglulega á Multilingualsearch.com.  Kristján hefur unnið við net lausnir síðan 1996 og leitarvélamarkaðssetningu frá 1999. Hann er vinsæll fyrirlesari um þessa nýju miðla jafnt innalands sem utan og hefur haldið fjölmörg námskeið.

Kristján heldur úti blogginu Optimize Your Web ásamt starfsfólki Nordic eMarketing.

Tölvupóstur: kmh@nordicemarketing.is, GSM: 860 9500